Nonnster

Svona er lífið!

11.01.2008 23:18:23 / nonnzterinn

2008

Jæja það er verið að biðja mig um að fara að blogga!

Það er nú frá svo miklu að segja en eins og alþjóð veit
þá eru jólin ný afstaðin og þau voru ekkert nema
vinna vinna vinna og hamborgarhryggur namm! Við fengum alveg
viðurstyggilega mikið af pökkum

en takk samt fyrir okkur :)
Ég er líka farinn að vinna í mjólkurtorginu í smáralind
sem er mjög fínt, stressandi og kalt! Kalt á toppnum hehe
Eygló er sem stendur nýfarin til Köben en við strákarnir gáfum
henni flug fram og til baka í jólagjöf og hún var mjög
ánægð með það! Ég verð með piltana á meðan og það verður
mikið um sykur á meðan skal ég lofa ;)
En allaveg áramótaheitið mitt í ár er að henda inn
allavega einni bloggfærslu á mánuði út árið!


Jólaandinn í fyrirrúmi hér


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 22:06:46 / nonnzterinn

2007 7002

Blogg.is 

Þetta ár 2007 er eitt það allra leiðinlegasta sem að ég hef nokk
tímann upplifað! Það hefði átt að vera það besta því að við keyptum
okkur íbúð í Sléttahrauni í Hfj, en nei það er búið að vera einn
horror! Þetta byrjaði allt 1.ágúst þegar að við áttum að fá barna-
og vaxtabætur en það endaði þannig að við áttum að borga hátt í
á fimmta hundruð þúsund! Það endaði ekki þar því að síðan bað ég
um að láta flytja heimasímann yfir og jájá það átti að taka 3-7
virka daga en neinei það tók 22 daga! Það er vængefið erfitt að vera
símalaus lengi en loksins kom það og allir voru kátir og glaðir!
En bíðiði við farið nú og fyllið á kókglösin og fáið ykkur sígó! ;)
Svo kom bomban kaupandinn af gömlu íbúðinni minn ætlar að hætta við
kaupin vegna þess að í ljós kom leyndur galli og hann vill rifta sem
að gerir það að verkum að ég þarf að redda mér hárri upphæð til að
geta klárað kaupinn á nýju íbúðinni og svona skemmtileg heit! Svo fékk ég
sorglegt sms um daginn sem hljóðaði svona hmm er að minna á skuld vegna
ökunáms kr 75 þús svo kom reikningsnr og nafnið á gaurnum og ég horfði
upp og sendi æðrimáttarvöldum löngu töngina mína og bölvaði jafn
hressilega og Kolbeinn Kafteinn í Tinna teiknimyndunum! En svo kom í ljós
að hann sendi í vitlaust nr sem betur fer því að ég var búinn að gleyma
hvað ökukennarinn minn hét þannig að ég hefði alveg getað borgað honum þetta!
Hjúkk.  Svo er það það nýjasta skatturinn heldur áfram að bögga mig! Nú síðast
tók hann 65 þús af laununum mínum í dag, og reynið að ímynda ykkur það að ég
byrjaði að vinna 10.sept launatímabilið mitt er 1-1! ég vann ekki helgi á
þessu launatímabili og það besta ég náði ekki að skila skattkorinu í tæka tíð
þannig að ég fékk ekki lítið útborgað ég fékk ÓGEÐSLEGA ANSTYGGILEGA
lítið útborgað! Allavega ég er búinn að ausa úr skálum reiðarinnar
í þessari bloggfærslu þannig að ég vona að árið 2008 sé innan
handar!
Kv
Jón "hinn mjög svo óheppni" Ingi
Þið hin megið bara halda áfram að njóta ársins 2007 í friði fyrir mér ;)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 21:30:15 / nonnzterinn

KLUKKI KLUKK

Var víst klukkaður og á að segja 8 staðreyndir sem aðrir eða fáir vita ekki

1. Það hefur verið kallað á björgunarsveit á mig því að ég festist í klettum
   þegar ég bjó á Stykkishólmi :)

2. Ég horfi reglulega á Nágranna

3. Ég hef dottið úr sömu klettum og í nr 1 og ég rispaðist bara smá á bringunni

4. Ég er skíthræddur við geitunga og kóngulær

5. Ég þoli ekki barnavæl  

6. Ég spila stundum körfubolta í huganum á meðan fólk talar við mig um e-ð mikilvægt

7. Ég þarf stundum að skrifa orð sem ég segi með puttunum í lófan á mér (nákvæmlega)

8. Ég er með hrikalega fóbíu fyrir hunda og kattahárum

Ég klukka Bryndísi Margréti, Guðrúnu Eyrith & Ingibjörgu Karlsd!


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 21:17:45 / nonnzterinn

Sumar uppgjör

Jæja á ég að fara að blogga eitthvað
Nenni því varla en skal koma með nokkra punkta

* Fór í sumarfrí
* Sumarfríið fór í að vera með veik börn því að
  Ingi og óskar fengu báðir hlaupabólu og báðir kvef júhú
* Seldi íbúðina mína
* Við keyptum okkur íbúð í Sléttahrauni í Hafnarfirði
* Fór í fæðingarorlof strax á eftir sumarfríinu :)
* Ingi Rafn byrjar aftur í leikskólanum þannig að bara gaman á daginn
* Skatturinn tók okkur í rass og í stað þess að fá vaxta&barna bætur þá
  sitjum við uppi með 480 þús króna skuld (p.s. verður leiðrétt)
* Byrjaður að pakka þar sem að við flytjum 1.sept

That´s about it það var lítið annað gert í sumar en íbúðarstússið en
samt sem áður þá var þetta fínasta sumar

Later


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 14:31:02 / nonnzterinn

Eru þig að fokking grínast í mér

Gleymdu börnunum vegna tölvuleikjafíknar

Ungt par sem var handtekið fyrir að vanrækja börnin sín tvö sagði tölvuleiki og internetið vera ástæðurnar fyrir vanrækslunni. Börnin, sem eru 22 og 11 mánaða strákur og stúlka, voru alvarlega vannærð og nær dauða en lífi þegar þau voru færð á sjúkrahús.

Michael Straw, 25 ára, og Iana Straw, 23 ára, játuðu á sig vanrækslu á föstudaginn síðastliðinn. Þau eru frá Reno í Nevada-ríki í Bandaríkjunum. Bæði eiga þau yfir höfði sér allt að 12 ára fangelsisdóm. Saksóknari sagði að fólkið hefði einfaldlega tapað sér í netútgáfu tölvuleiksins „Dungeons & Dragons" og gleymt að hugsa um börnin sín.

Starfsfólk á sjúkrahúsinu varð að klippa hárið af 11 mánaða stúlkunni þar sem það var útatað í kattahlandi. Þá hafði hún sýkingu í munni, of þurra húð og þjáðist af alvarlegum vökvaskorti. Hungur hafði leikið strákinn grátt auk þess sem hann hafði kynfærasýkingu. Þá höfðu vöðvar hans ekki náð að þroskast almennilega vegna vannæringar og átti hann því erfitt með gang. Bæði börnin dafna nú vel hjá fósturforeldrum.

Sérfræðingar hafa ekki enn viljað samþykkja að það að vera háður tölvuleikjum sé sálrænt vandamál, eins og alkóhólismi eða eiturlyfjafíkn.

 

Og maður er að hafa áhyggjur þegar maður gleymir kannski að bursta tennurnar í börnunum eitthvað kvöldið! Þetta er viðbjóður!!!

Allavega allt gott að frétta hér nenni ekki að standa í þessu bloggi þegar þetta vibba veður er úti!!

See ya´ll


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 10:31:50 / nonnzterinn

Fat man walking

Jæja það er að styttast í sumarfrí 7 dagar jibbýý!!!
Það er búið að vera hell mikið að gera síðustu daga þannig að það verður kærkomið
að fara í smá frí! Um þarsíðustu helgi þá var ég home alone frá föstudegi-mánudags
og það var sweeeeeet. Ætlaði að mála heilan helling en endaði á að mála sem allra
minnst :( Síðan er búið að vera að vinna alla daga ekki mikið að gera þannig lagað
séð en samt marr er orðinn þreyttur. Síðan erum við búin að selja íbúðina okkar og
núna erum við á fullu að finna okkur nýtt crib höfum frest til sept.
Síðan tókum ég, Jobbi og Óliver úr hagkaup þátt í streetball móti í körfubolta og
það var heavy gaman! Geggjað veður og allez! Við erum sáttir spiluðum
5 leiki unnum 3 en töpuðum 2 ekki slæmt miðað við
hvað við höfum æft lítið!
Allavega ég ætla svo að reyna að vera duglegur að blogga (einmitt)
See ya bitches and gentlemens
Nonnster

» 12 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 19:03:33 / nonnzterinn

Á enga vini!!!

Vill einhver vera vinur minn???

Er með svo fáa á msn inu mína að ég er að auglýsa eftir vinum!!

Sad i know!

Einhver sem hefur áhuga

nonnzter@hotmail.com

hehe

nördinn kveður


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 03:10:54 / nonnzterinn

Körfuboltalið!!!

Halló halló!!

Ætlaði bara að koma einu á framfæri ég ætla mér að senda lið í utandeild í körfubolta, Breiðablik heldur utan um þá keppni og ef einhver hefur áhuga þá er etta í kringum 25 þús á lið, það er keppt í 2*16 min, það eru dómarar og alles það eru í kringum 6-8 lið í þessu þannig að þetta eru ekkert svo margir leikir! Allir áhugasamir karlmenn á aldrinum 17-38 ára eru velkomnir!! Plís þetta verður að takast!!! Koma svo 

p.s. Stúlkur á aldrinum 20-26 ára er velkomið að skrá sig í klappstýru og watergirl jobbin!!! ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 10:37:47 / nonnzterinn

Því nú er sumar sumar sumar og sól :Þ

Nóg hefur verið um að vera upp á síðkastið, ég er búinn að vera að mála síðustu daga ogþað gengur anskotann ekki neitt því að börnin eru alls ekki að hjálpa til því að þegar ég set á fullt þá byrja þeir með alla heimsins mestu stæla en góðir hlutir gerast hægt! Við erum búin að stja íbúðina á sölu og ætlum að reyna að stækka við okkur! Erum búin að skoða 2 íbúðir og við erum in love af einni íbúðinni 105 fermetrar og hún er á völlunum en eflaust eignumst við hana ekki! Það styttist óðum í að ég fari í sumarfrí get ekki beðið er orðinn dálítið þreyttur á líkama og sál! Óskar Erik er kominn með 4 tennur og er orðinn dálítið duglegur að sitja sjálfur en hann er samt smá latur við að sitja eða liggja á maganum! Ég fór síðustu helgi á tóbakskynningu á Broadway og það var allt á floti í fríu búsi, það var að koma á markað nú tegund af Camel náttúrlegar sígarettur (einmitt), nú er líka skollið á reykingabann og við erum úthýst eins og alltaf! Manni líður eins og plágu. Allavega ætla að fara að mála lofa að fara að blogga meira þangað til næst

Keep it real  


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 10:23:05 / nonnzterinn

Gubbupest!

Jæja loksins asnast ég í smá blogg!
Það er búið að vera margt að gerast upp á síðkastið ég ætla að reyna að fara yfir þetta í stuttu
máli!

1. Ingi Rafn fær gubbupest
2. Förum í sumarbústað og það var ógeðslega gaman!
3. Eygló fær gubbupest
4. Óskar Erik fær gubbupest
5. Ég veikist en ekki eins ílla og familian mín! (Held að Eygló sé jellous)
6. Manchester United dettur úr úr meistarad en vinnur gott sem ensku deildina :)
7. Hörður og Hilmir eru komnir með eigið pleis til hamingju!

Síðan erum við Eygló að fara að reyna að selja íbúðina ætlum aðeins að mála og
fiffa upp á hana og láta síðan meta hana! Það er orðið svolítið erfitt að vera 4
og eitt svefnherbergi dálítið þröngt! Svo styttist alltaf jafnóðum í að ég fari í
sumarfrí og fæðingarorlof, það verður röff fyrst því að ég verð einn með þá báða
fyrsta mánuðinn og ef ég þekki Inga Rafn rétt þá mun hann láta heyrast í sér.
Jæja nenni ekki meir vona að þið hafi notið lestursins.

See ya!


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 20:29:03 / nonnzterinn

Jæja er ekki kominn tími á að tjá mig aðeins??

Það er búið að vera rugl að gera síðustu daga, Það byrjaði á því að við vorum að skíra og hann var skírður Óskar Erik.  Það var geggjað gaman það mættu um 30 manns sem er bara mjög fínt og Óskar fékk fullt af flottu dóti, takk fyrir okkur! Síðan kom páskadagur og ég overdozaði á eggjunum, búinn að fá nett ógeð núna! Svo er búið að vera þrusu mikið að gera í vinnunni ekki kúnnalega séð heldur er bara búið að vera fökk mikið að gera við að eyða þessu, setja hitt upp og e-ð sona stöff! Manchester-menn hvað segiði gott? Ég segji bara 7-1 ;) Ein spurning hvernig grennist maður án þess að hreyfa sig? Er búinn að fitna feitt mikið leitlí ekki gott.  Svo var tölvan okkar í viðgerð um daginn og hún er orðin bara nett góð núna (þeir sem muna eftir viftunni á henni ég get sagt að það problem er ekki lengur til staðar :) Jæja ég er að fara að hugga Óskar það er orðið þannig að þegar eitt barnið sofnar þá vaknar hitt! Aldrei breik :)

Adioz my friends

Nonni "Ennþá Fitnandi" Feiti  


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 00:11:58 / nonnzterinn

Hæ Hæ

Jæja það er smá færsla! Lítið búið að gerast hjá kallinum upp á síðkastið það er bara vakna,vinna,börn,borða og sofa! En það er alltaf gaman í vinnunni ekki satt!! Svo er maður bara að fara að skíra um páskana! Þá fær maður nú gott að éta! Styttist líka alltaf í sumar sem er mjög gott fyrir utan pöddur, kóngulær og geitunga! Ég lofa að blogga meira á sunnudaginn í þynnkunni það er nebbla Idol kvöld hagkaupa þá! Allavega Óskar er kominn á vælið! See ya later

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 14:09:05 / nonnzterinn

Helber snilld!!

Ég ætla að segja ykkur sögu sem er leiðinleg en sönn,
þegar kem ég heim örþreyttur eftir vinnu dagsins önn,
byrjar kellingin að jagast í mér farðu út í búð,
keyptu pylsupakka, sígarettur, vínarbrauð og snúð,
eftir kvöldmat sest ég niður og vill sjónvarp horfa á,
að ég fái að vera í friði nei nei það er af og frá,
þá er kallað fram úr eldhúsinu þvo upp diskana,
og ég missi þá af fréttunum ég gæti kýlt hana,
svo á eftir þarf að ryksuga og skúra hólf og gólf,
þegar þessu öllu lýkur þá er klukkan orðin tólf,
þegar loksins ég í bólið kemst og sofna vonum brátt,
þá vekur hún mig nöldrandi þú hrýtur allt of hátt,
þá rýk ég upp í offorsi og tútna allur út,
ég ætla að segja þér að nú er komið nóg ég er farinn út!

Ég fer heim til vinar míns og segi honum allt,
við sitjum inni í stofu og drekkum bara malt,
kemur ekki konan hans og verður alveg snar,
æðir um og yglir sig og sýnir tennurnar,
þér væri nær að sofa en að drekka um miðja nótt,
og koma þessum vini þínum út úr húsi fljótt,
þú gerir aldrei handtak hérna heima fyrir mig,
hugsar bara um vini þína mest um sjálfan þig,
ég þarf sjálf að sjá um allt, þvo og elda mat,
þú situr bara og klórar þér og étur á þig gat,
þá stóð hann upp úr stólnum og sagði þetta er ekkert grín,
nú tek ég til minna ráða nöldurskjóðan þín,
hann horfði á hana hvössum augum og tútnaði allur út,
ég ætla að segja þér að nú er komið nóg ég er farin út!

Við litum inn á barinn þar sem vinur okkar vann,
við sögðum honum söguna og hann til með okkur fann,
við töluðum og töluðum og drukkum frekar stíft,
við töluðum um konurnar já þeim var ekki hlíft,
við ákváðum að gera eitthvað þessu máli í,
því það gengi ekki lengur svona svínarí,
við ákváðum að standa upp og sýna okkar vald,
temja soldið konurnar og hafa á þeim taumhald,
en í því bil þá ruddust inn tvær konur ferlegar,
þær röbbuðu um á gólfinu og voru geggjaðar,
þær sögðu okkur að standa upp og koma með sér heim,
og skíthræddir við stóðum upp og löbbuðum að þeim,
í hnakkadrambið tókum þær þar til þær kiknuðu í kút,
við skulum segja ykkur nú er komið nóg komið ykkur út!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 23:06:00 / nonnzterinn

Seint blogga sumir en blogga þó

Jæja kominn tími á blogg eða hvað??

Það er mikið búið að vera að gera síðan ég bloggaði síðast! Ég lenti um daginn í svaka törn í hagkaup þar sem að talning,vsk-verðbreytingar útborgunardagur og danskir dagar kom allt í sömu vikunni ekki slæmt það ekki satt? Svo er maður nattúrulega vinnandi á hverjum degi og svo family life á kvöldin! Ingi Rafn og Óskar Erik eru bara flottastir vaxa vel og dafna ekki slæmt það! Fer að smella inn myndum af þeim von bráðar! Svo vann Man Utd Liverpool á allra skemmtilegasta hátt um daginn ekki slæmt það! Svo var allsvakaleg hálka í dag goddamn strætó straujaði 2 bíla og annar strætó skautaði fyrir framan mig og ég líka því ég gat ekki haldið hraða út af honum, slapp sem betur fer út úr þeim ógöngum! Síðan er ég að vinna á morgun (laugardag) og eftir það koma 3 helgar í röð í frí ;) ;) og síðan fer að styttast í að Óskar verði skírður! Fuckin´ ey hvað það er að snjóa mikið at the monent! Allavega fariði að kvitta í gestabók og gera komment! Allavega bið að heilsa ykkur og 

Glory Glory Man United

Nonnster 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Könnun
Hvar er ódýrast að versla?








Sportpakki Svavars og Jóns